06.11.17 - 16:20
Magnús Már Einarsson
Pablo Punyed í KR (Staðfest) - Beitir og Pálmi framlengja

Pálmi Rafn Pálmason, Pablo Punyed, Kristinn Kjærnested, Beitir Ólafsson og Rúnar Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KR hefur fengið miðjumanninn Pablo Punyed til liðs við sig en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið nú rétt í þessu.
Pablo skrifaði í gær kveðju til ÍBV en hann hefur leikið í Eyjum undanfarin tvö ár.
Pablo er 27 ára gamall en hann er frá El Salvador. KR verður fimmta félagið hans á Íslandi á eftir ÍBV, Stjörnunni, Fylki og Fjölni.

Beitir Ólafsson og Pálmi Rafn Pálmason skrifuðu einnig báðir undir nýja samning við KR í dag en þeir voru að verða samningslausir.
Hinn 33 ára gamli Pálmi Rafn hefur verið fastamaður í liði KR undanfarin þrjú tímabil síðan hann kom heim frá Lilleström í Noregi. Hann gerði nýjan tveggja ára samning við KR.
„Ég hef ekki lokið mínum markmiðum hjá KR og ekki náð að sýna það sem ég hef virkilega fram að færa. Það er eitthvað sem pirrar mig. Við sjáum til hvað verður,\" sagði Pálmi í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.
Beitir kom óvænt inn í mark KR þegar Stefán Logi Magnússon meiddist í byrjun sumars. Beitir stóð vaktina vel í markinu út tímabilið og eignaði sér stöðuna. Hann framlengdi samning sinn við KR um þrjú ár.

Pablo Punyed.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Beitir Ólafsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Pálmi Rafn Pálmason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð