Pálmi Rafn: Í betra og betra formi eftir því sem árin líða
Auglýsing

Pálmi í leik með KR.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Ég ræddi við fleiri aðila en þetta var það sem ég vildi. Ég ætla að halda áfram hér og reyna að gera betur en ég hef gert,\" sagði Pálmi Rafn Pálmason, miðjumaður KR, eftir að hann skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við KR.
Pálmi hefur leikið með KR undanfarin þrjú ár en liðið hefur ekki unnið titla á þeim árum.
„Ég hef ekki náð þeim markmiðum sem ég ætlaði mér og það fer í taugarnar á mér. Ég ætla að gera allt sem ég get til þess að ná þeim.\"

Pálmi er 33 ára gamall en hann ætlar að spila áfram með KR í að minnsta kosti tvö ár til viðbótar.
„Ég hef aldrei verið betri. Ég verð í betra og betra formi eftir því sem árin líða. Ég ætla að koma inn í nýtt tímabil í hörkuformi,\" sagði Pálmi.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.