Fotbolti.net
06.11.18 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Dröfn og Ísabel í Keflavík (Staðfest)

Ísabel Jasmín Almarsdóttir.

Ísabel Jasmín Almarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Dröfn Einarsdóttir og Ísabel Jasmín Almarsdóttir hafa gengið til liðs við Keflavík fyrir keppni í Pepsi-deild kvenna næsta sumar en þær koma frá Grindavík.

Grindavík féll úr Pepsi-deildinni í sumar á meðan Keflavík fór upp og spilar í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Ísabel og Dröfn eru báðar 19 ára gamlar en þær skrifuðu undir tveggja ára samning við Keflavík.
Dröfn og Ísabel hafa báðar spilað alla leiki Grindavíkur í Pepsi-deildinni undanfarin tvö tímabil.

Báðar eru þær miðjumenn en Ísabel var á síðasta tímabili fyrirliði Grindavíkur.

„Leikmennirnir hafa báðir verið í lykilhlutverkum í sínu uppeldisfélagi síðustu ár og því eru það frábærar fréttir fyrir klúbbinn að þær hafi ákveðið að nýta sína kraft í þágu Keflavík í þeim verkefnum sem eru framundan. Keflavík býður þær velkomnar til félagsins," segir á heimasíðu Keflavíkur.
Dröfn Einarsdóttir

Dröfn Einarsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.