Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   þri 06. nóvember 2018 16:09
Magnús Már Einarsson
Enski boltinn til Símans - Þriggja ára samningur (Staðfest)
15% fleiri leikir sýndir
Úr leik í ensku úrvalsdeildinni.
Úr leik í ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
Síminn hefur staðfest frétt Fótbolta.net fá því á föstudag um að Síminn og enska úrvalsdeildin hafa náð samningum um sýningaréttinn frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu frá og með tímabilinu 2019/2020.

Sýningarrétturinn gildir út þrjú leiktímabil en Síminn hafði betur gegn Sýn (Stöð 2 Sport) í baráttunni um réttinn. Enska úrvalsdeildin hefur verið sýnd á Stöð 2 Sport frá því árið 2007 en frá og með næsta tímabili verður breyting þar á.

„Við erum afskaplega stolt að hafa náð þessu frábæra sjónvarpsefni til Símans. Enska úrvalsdeildin er eitt vinsælasta sjónvarpsefni landsins og við erum spennt að kynna nýjungar til leiks sem ekki hafa verið í boði áður eins og t.d. 4K útsendingar. Það ætti einnig að gleðja aðdáendur enskrar knattspyrnu að við munum sýna um 15% fleiri leiki í beinni útsendingu en er gert í dag,“ segir Orri Hauksson forstjóri Símans.

„Við bjóðum Símann hjartanlega velkomin í hóp samstarfsaðila okkar næstu þrjú tímabilin. Við hlökkum til að vinna með Símanum að gera upplifun aðdáenda enska boltans á Íslandi enn betri,“ segir Richard Scudamore framkvæmdastjóri Ensku Úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner