Fotbolti.net
06.12.12 - 07:30
Elvar Geir Magnússon

Hafþór Þrastarson í Hauka (Staðfest)

Hafþór Þrastarson í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Hafþór Þrastarson er genginn í raðir Hauka í Hafnarfirði. Þetta staðfesti Ólafur Jóhannesson, þjálfari Hauka, í samtali við Fótbolta.net í gær.

Haukar leika í 1. deildinni.
Hafþór sem er 22 ára gamall spilaði tvo leiki með FH í Pepsi-deildinni á liðnu sumri áður en hann var lánaður til Selfoss á miðju tímabili og spilaði þar sex leiki.

Hafþór hóf feril sinn með FH sumarið 2010 en var lánaður til KA árið 2011 og spilaði þá 21 leik með liðinu í deild og bikar. Hann á að baki 40 meistaraflokksleiki.

Hann lék með Haukum í gær þegar liðið mætti Leikni í æfingaleik í Egilshöll.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.