06.12.16 - 10:27
Elvar Geir Magnússon
Viktor Jóns snýr aftur í Þrótt (Staðfest)

Viktor í leik með Þrótti í 1. deildinni 2015.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Jónsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt, en hann kemur til liðsins frá Víkingi Reykjavík. Gengið var endanlega frá samningum milli félaganna núna í morgunsárið en Viktor skrifaði undir hjá Þrótti fyrir nokkrum dögum.
Viktor er fæddur 1994 og hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað með meistaraflokki Víkings í fimm keppnistímabil og hjá Þrótti í eitt. Hann á að baki 99 leiki í meistaraflokki þar sem hann hefur spilað frá sextán ára aldri. Hann hefur skorað 33 mörk í þessum leikjum, þar af 22 mörk í 24 mótsleikjum hjá Þrótti árið 2015 þegar hann var á láni frá Víkingi.
Viktor skoraði 19 mörk í 1. deild það sumar og varð næstmarkahæstur. Hann hefur lengi verið meðal efnilegustu knattspyrnumanna landsins og á að baki nokkra landsleiki með U21 árs landsliði Íslands.
„Það er vel þekkt staðreynd að við glímdum við tvö höfuðvandamál síðastliðið sumar. Annars vegar fengum við á okkur alltof mörg mörk og þess vegna höfum við meðal annars bætt Grétari Sigfinni Sigurðarsyni og Hlyni Haukssyni í hópinn. Hins vegar skoruðum við ekki nægilega mörg mörk. Þetta var auðvitað afleit blanda. En nú höfum við ekki bara endursamið við Emil Atlason, heldur líka fengið markakónginn Viktor Jónsson til liðs við okkur til að tækla það vandamál,\" segir Gregg Ryder þjálfari Þróttar við heimasíðu félagsins.
„ Þróttarar elska Viktor, enda ár og dagar síðan annar eins markakóngur spilaði hérna í hjartanu í Reykjavík. Hann er metinn að verðleikum, en auðvitað eru væntingarnar talsverðar. Kalt mat? Það verður veisla að fylgjast með Viktori og Emil næsta sumar. Ísland á alltof fáa leikmenn í þessum gæðaflokki,\" segir Ótthar Edvarsson, framkvæmdastjóri Þróttar.
Þróttarar höfnuðu í neðsta sæti Pepsi-deildarinnar á liðnu tímabili og leika því í Inkasso-deildinni á komandi ári.

Heimild: Heimasíða Þróttar