Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 06. desember 2021 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp ekkert stressaður yfir samningamálum Salah
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah leikmaður Liverpool verður samningslaus eftir næstu leiktíð.

Liverpool hefur samið við margar af sínum helstu stjörnum að undanförnu en ekkert bolar á nýjum samningi hjá Salah sem er einn besti leikmaður heims í dag.

Salah var í viðtali á dögunum þar sem hann sagðist vera ánægður hjá Liverpool en Barcelona er sagt hafa áhuga á honum. Hann er ánægður með þær sögusagnir en hugur hans sé hjá Liverpool.

Jurgen Klopp stjóri Liverpool er ekki stressaður yfir þessu.

„Við erum að tala saman en að gera nýjan samning við leikmann eins og Salah gerist ekki bara yfir einum tebolla. Salah er ánægður, ég er ánægður. Það er ljóst hvað við viljum, svona hlutir taka tíma."
Athugasemdir
banner
banner
banner