Liverpool mætir AC Milan á útivelli á morgun í Meistaradeildinni. Þetta er lokaumferðin en Liverpool hefur tryggt sér toppsætið með því að vinna alla fimm leikina til þessa.
Kostas Tsimikas gríski vinstri bakvörðurinn sat fyrir svörum á fréttamannafundi fyrir leikinn. Hann fær ekki mörg tækifæri þar sem hann er á eftir Andy Robertson í goggunarröðinni en hann nýtur sín hjá félaginu.
„Ég nýt mín í hverjum einasta leik sem ég spila. Þegar þú spilar með þessu liði, með stuðningsmennina að ýta þér áfram þá er ómögulegt að gera ekki sitt besta. Ég mun njóta allra leikja sem ég spila fyrir þetta félag," sagði Tsimikas.
Það má búast við því að Tsimikas byrji og Jurgen Klopp stjóri liðsins muni byrja með unga leikmenn og eldri sem hafa fengið fá tækifæri á leiktíðinni.
Athugasemdir