07.01.13 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Dean Saunders orðinn stjóri Wolves (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Eggert Gunnþór Jónsson og Björn Bergmann Sigurðarson eru komnir með nýjan knattspyrnustjóra eftir að Dean Saunders var ráðinn til Wolves.
Stale Solbakken var rekinn eftir að Wolves tapaði um helgina fyrir utandeildarliði Luton í FA-bikarnum.
Stale Solbakken var rekinn eftir að Wolves tapaði um helgina fyrir utandeildarliði Luton í FA-bikarnum.
Saunders er 48 ára og hóf knattspyrnustjóraferilinn hjá Wrexham en tók við Doncaster í september 2011. Hann náði ekki að koma í veg fyrir fall liðsins niður í C-deildina þar sem liðið situr sem stendur í 2. sæti.
Saunders er fyrrum landsliðsmaður Wales en hann lék sem sóknarmaður, meðal annars fyrir Liverpool, Derby og Aston Villa.
Saunders er fyrrum landsliðsmaður Wales en hann lék sem sóknarmaður, meðal annars fyrir Liverpool, Derby og Aston Villa.
