07.01.13 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Þórður Ingason í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Þórður Ingason hefur gengið til liðs við Fjölni á nýjan leik en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Þórður, sem er 24 ára, er uppalinn hjá Fjölni en hann lék síðast með liðinu sumarið 2009.
Árið 2010 var Þórður í láni hjá KR og undanfarin tvö ár hefur hann síðan varið mark BÍ/Bolungarvíkur.
Hann er nú kominn aftur í Fjölni þar sem hann mun berjast við Steinar Örn Gunnarsson og Martein Örn Halldórsson um sæti í liðinu en þeir vörðu mark Grafarvogsliðsins í fyrra.
,,Hann er búinn að vera í langri útlegð langt í burtu en nú er hann kominn aftur heim og ætlar að sanna sig og vinna sér sæti í liðinu. Það er barátta um það. Við erum með þrjá markmenn og það er ekkert gefins í þessu,\" sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis í samtali við Fótbolta.net í dag.