07.01.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hörður Björgvin fær ástralskan liðsfélaga (Staðfest)

Bailey Wright.

Mynd: Getty Images

Bailey Wright.

Mynd: Getty Images
Bristol City hefur fengið ástralska varnarmanninn Bailey Wright til liðs við sig, en hann kemur frá Preston fyrir óuppgefna upphæð.
Wright, sem er 24 ára gamall, kemur eins og áður segir frá Preston, en þar var hann í átta ár. Hann skrifar undir tveggja- og hálfs árs samning við Bristol með möguleika á framlenginu um eitt ár.

„Bailey hefur stríðsanda og hann táknar góð kaup fyrir okkur,\" sagði Lee Johnson, þjálfari Bristol City, um nýjasta liðsmann liðsins.
„Hann er mikla og góða reynslu úr Championship-deildinni, hann er harður, og líka landsliðsmaður hjá Ástralíu.\"
Wright, sem á 12 landsleiki fyrir Ástralíu, er þriðji leikmaðurinn sem Bristol fær til sín í þessum glugga. Áður hafði liðið samið við sóknarmanninn Milan Djuric og miðjumanninn Jens Hegeler.
Íslenski landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon er á mála hjá Bristol City, en liðið er sem stendur 18. sæti Championship-deildarinnar.

Heimild: BBC