07.01.19 - 19:45
Ívan Guðjón Baldursson
PSG lánar Timothy Weah til Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Timothy Weah er búinn að skrifa undir lánssamning við Skotlandsmeistara Celtic sem gildir út tímabilið.
Weah kemur á láni frá Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain en hann hefur komið þrisvar við sögu með liðinu á tímabilinu og skorað tvö mörk.
Timothy er sóknarmaður líkt og faðir sinn George, sem átti frábæran feril sem atvinnumaður í knattspyrnu og er í dag forseti Líberíu.
George gerði garðinn frægan með Mónakó á sínum tíma og átti eftir að vera mikilvægur hlekkur í byrjunarliði PSG og AC Milan á tíunda áratugnum.
Timothy er fæddur 2000 en hefur spilað 8 leiki fyrir A-landslið Bandaríkjanna þrátt fyrir að vera ennþá táningur.