Fotbolti.net
07.02.17 - 12:20
Elvar Geir Magnússon

Gummi Magg aftur í Fram (Staðfest)

Guðmundur í leik með Fram á sínum tíma.

Guðmundur í leik með Fram á sínum tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Sóknarmaðurinn Guðmundur Magnússon er genginn aftur í raðir Fram og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Guðmundur, sem verður 26 ára 10.júní næstkomandi, er Fram að góðu kunnur enda uppalinn hjá félaginu. Hann lék með félaginu frá 2007 til 2012 við góðan orðstír. Síðan þá hefur hann leikið með Víkingi Ólafsvík, HK og nú síðast með Keflavík.

„Það er knattspyrnudeild Fram mikið fagnaðarefni að ná samkomulagi við Guðmund,\" segir á heimasíðu Fram.

Guðmundur hefur skorað 28 mörk í 139 meistaraflokksleikjum í deild og bikar.

Fram endaði í sjötta sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.