Fotbolti.net
07.02.17 - 12:10
Elvar Geir Magnússon

Tiote í kínversku B-deildina (Staðfest)

Tiote eltir peningana til Kína.

Tiote eltir peningana til Kína.

Canon

Mynd: Getty Images

Cheick Tiote, landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar, er orðinn leikmaður Beijing Enterprises Group í kínversku B-deildinni.

Tiote er 30 ára og kemur frá Newcastle United.
Fyrst var talið að Tiote væri á leið til Shandong Luneng í Ofurdeildinni og kom mörgum á óvart þegar B-deildarfélagið sendi frá sér tilkynningu.

Á sama tíma og Tiote var kynntur voru fjórir aðrir nýir leikmenn kynntir.

Tiote hefur verið hjá Newcastle síðan hann kom frá Twente 2010 og varð hann strax lykilmaður á miðju liðsins. Á þessu tímabili hefur Rafa Benítez aðeins notað hann í einum deildarleik og tveimur bikarleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.