Fotbolti.net
07.02.18 - 15:07
Magnús Már Einarsson

Evra til West Ham (Staðfest)

Evra verður í treyju númer 27.

Evra verður í treyju númer 27.

Canon

Mynd: Twitter

Vinstri bakvörðurinn reyndi Patrice Evra hefur gert samning við West Ham út tímabilið.

David Moyes, stjóri West Ham, þekkir Evra síðan hjá Manchester United tímabilið 2013/2014.

Mikil meiðsli eru hjá West Ham auk þess sem vinstri bakvörðurinn Arthur Masuaku er að taka út sex leikja bann eftir að hafa hrækt á Nick Powell leikmann Wigan á dögunum.
Hinn 36 ára gamli Evra var rekinn frá Marseille fyrr á þessu tímabili fyrir að sparka í átt að stuðningsmanni fyrir leik gegn Vitoria í Evrópudeildinni.

UEFA setti Evra í bann fram á sumar í Evrópukeppnum en hann má hins vegar spila í deildarkeppnum. Evra var samningslaus og gat því samið við West Ham þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður.

West Ham kynnti Evra til leiks með þessu skemmtilega myndbandi hér að neðan.

We love this game! #ForEvraBlowingBubbles pic.twitter.com/UugpXaL6um

— West Ham United (@WestHamUtd) February 7, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.