07.02.18 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Flamini til Getafe (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Mathieu Flamini hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við Getafe á Spáni.
Hinn 33 ára gamli Flamini hefur verið án félags síðan hann fór frá Crystal Palace síðastliðið sumar.
Flamini hefur undanfarnar vikur æft með Getafe og hann hefur nú gengið til liðs við félagið sem siglir lygnan sjó í 11. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.

Flamini spilaði með Arsenal frá 2004 til 2008 og aftur frá 2013 til 2016 en í millitíðinni var hann hjá AC Milan.