Austurríski landsliðsmaðurinn Xaver Schlager er kominn með samningstilboð frá skosku meisturunum í Celtic. Daily Record segir frá.
Schlager er 28 ára gamall miðjumaður sem er á mála hjá RB Leipzig í Þýskalandi en samningur hans við félagið rennur út í sumar.
Hann hafnaði nýjum samningi á dögunum og er útlit fyrir að hann muni reyna fyrir sér annars staðar eftir tímabilið.
Record segir að Celtic hafi boðið honum samning fyrir sumarið, en hvort hann muni fara þangað er annað mál.
Stærri félög í ensku úrvalsdeildinni og Seríu A á Ítalíu eru áhugasöm um leikmanninn.
Schlager hefur spilað 49 landsleiki fyrir Austurríki og mun væntanlega ná þeim merka áfanga að spila 50. leik sinn í landsliðsverkefninu í mars.
Athugasemdir




