Fotbolti.net
07.03.19 - 22:30
Arnar Helgi Magnússon

Andri Þór til liðs við Aftureldingu á nýjan leik (Staðfest)

Andri Þór til liðs við Aftureldingu á nýjan leik (Staðfest)
Canon

Mynd: Hanna Símonardóttir

Andri Þór Grétarsson er mættur aftur í Mosfellsbæinn og mun leika með Aftureldingu í Inkasso-deildinni í sumar. Hann kemur á láni frá HK.
Andri Þór þekkir vel til hjá Aftureldingu en hann spilaði með liðinu í 2. deild síðasta sumar og hjálpaði liðinu að tryggja sæti sitt í Inkasso-deildinni.

Trausti Sigurbjörnsson hefur spilað með Aftureldingu í vetur en hann meiddist í æfingaleik gegn ÍA á dögunum og verður frá í einhvern tíma.

Afturelding og Fjölnir mætast annað kvöld á Varmárvelli í Lengjubikarnum og er Andri Þór kominn með leikheimild fyrir þann leik.

„Við bjóðum Andra velkominn í Mosfellsbæinn á nýjan leik!" segir á Facebook-síðu Aftureldingar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.