07.03.19 - 11:30
Arnar Daði Arnarsson
Eygló lánuð í HK/Víking (Staðfest)

Eygló í leik með Val gegn HK/Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eygló í leik með Val gegn HK/Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK/Víkingur hefur fengið hina ungu Eygló Þorsteinsdóttur á láni frá Val fyrir átökin í Pepsi Max deild kvenna.
Eygló sem er 19 ára lék tvo leiki með Val í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar en í heild á hún fjóra leiki að baki með Val í efstu deild.
Eygló sem er 19 ára lék tvo leiki með Val í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar en í heild á hún fjóra leiki að baki með Val í efstu deild.
Að auki á hún að baki níu unglingalandsleiki bæði með U-17 og U-19 ára landsliðinu.
HK/Víkingur endaði í 7. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra með 18 stig, fimm stigum meira en Grindavík sem féll í Inkasso-deildina ásamt FH.
HK/Víkingur
Komnar:
Ana Victoria Cate frá Stjörnunni
Eva Rut Ástþórsdóttir frá Fram/Aftureldingu
Kristrún Kristjánsdóttir frá Stjörnunni
Halla Margrét Hinriksdóttir frá Breiðablik
Eygló Þorsteinsdóttir frá Val (á láni)
Farnar:
Margrét Sif Magnúsdóttir í FH
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir í Þrótt R.
Maggý Lárentsínusdóttir í FH
Linda Líf Boama í Þrótt R.