Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. mars 2021 13:37
Aksentije Milisic
Axel opnaði markareikninginn hjá Riga
Mynd: Viking
Axel Óskar Andrésson, leikmaður Riga í Lettlandi, opnaði markareikning sinn hjá lettnesku meisturunum í gær gegn Spartak Jurmala í 4-2 sigri.

Axel skoraði eitt mark í leiknum og kom það með skalla. Þetta var siðasti æfingaleikurinn fyrir mótið sem hefst um næstu helgi.

Spartak Jurmala vann deildina í Lettlandi fyrir fjórum árum síðan en eftir það hefur Riga tekið yfir.

Hinn 22 ára gamli Axel gekk til liðs við Riga frá Viking í Noregi, fyrr á þessu ári.
Athugasemdir
banner