Fotbolti.net
20.09.26 - 22:15
Innkastið
Steypustöðin

Sterkastur í 24. umferð - Með fokking Gylfa Sig fyrir framan sig

Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur)

Gylfi er leikmaður umferðarinnar.

Gylfi er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur lenti undir gegn KR á Meistaravöllum í gær en kom til baka og tryggði sér sigur, 1-2. Sigurinn gerði það að verkum að Víkingur innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn og fagnaði á heimavelli KR.

Gylfi Þór Sigurðsson var maður leiksins og er að auki Sterkasti leikmaður umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar.

„Mögnuð frammistaða. Gylfi var frábær varnarlega og sóknarlega í þessum leik. Ég get ekki talið hversu oft hann bjargaði Víkingum eftir mistök (ball recovery). Hann stjórnaði einnig miðjunni eins og hershöfðingi," skrifaði Andri Stefánsson, fréttamaður Fótbolta.net, í skýrslu sinni um leikinn.

„Geggjuð tilfinning. Við erum búnir að vera að vinna að þessu allt tímabilið, allan veturinn og allt árið, þannig að þetta er bara geggjað," sagði Gylfi í viðtali eftir leikinn og hrósaði stuðningsmönnum Víkings sérstaklega.

„Það er alltaf gaman að spila fyrir framan þá og extra gaman núna. Við fáum geðveikan stuðning hvert sem við förum. Þeir hafa verið frábærir allt tímabilið og líka allt tímabilið í fyrra. Þeir elta okkur út um allt og láta heyra í sér.“

Hef ekki séð svona áður
Gylfi hefur verið magnaður á tímabilinu og er nú líklegastur til að vera valinn leikmaður ársins. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, ræddi um Gylfa í viðtali við Sýn Sport eftir sigurinn á Meistaravöllum og talaði sérstaklega um þá miklu fagmennsku sem einkennir hann.

„Þetta er algjör sigurvegari. Hann gerir allt sem hann getur til að vera eins klár og mögulegt er. Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni sem ég hef spilað með eða þjálfað,“ sagði Sölvi

„Hann leiðir með góðu fordæmi, hvernig hann fer inn í allar tæklingar, gefur aldrei tommu eftir, drífur liðið áfram og hvetur menn, öskrar ef það þarf að kveikja á þeim, gerir allt sem þarf til að vinna leikinn."

Sölvi segir þá Gylfa gera alla leikmenn í kringum sig betri.

„Ég þarf ekkert að segja strákunum hvernig á að gera hlutina. Það er gæi hérna sem er að sýna þeim það. Þeir vilja vera góðir í fótbolta, vilja bæta sig, og þeir eru með fokking Gylfa Sig fyrir framan sig. „Ókei, ég geri þá eins og hann.“ Svo það er mjög auðvelt fyrir mig. Þeir sjá hvernig á að gera þetta," segir Sölvi við Sýn Sport.
Sterkasta lið 24. umferðar - Til hamingju Víkingur!
TENGT EFNI

Sterkasta lið 24. umferðar - Til hamingju Víkingur!

Lestu um leikinn: KR 1 - 2 Víkingur R.
Gylfi er nú á leið í landsliðsverkefni en hann er í íslenska hópnum sem er að fara að spila fjóra leiki í Þjóðadeildinni í þessum langa glugga.


Sterkustu leikmenn:
23. umferð - Sigurður Breki Kárason (KR)
22. umferð - Viktor Jónsson (ÍA)
21. umferð - Oliver Ekroth (Víkingur)
20. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
19. umferð - Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur)
18. umferð - Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
17. umferð - Jökull Andrésson (FH)
16. umferð - Arnór Ingvi Traustason (KR)
15. umferð - Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
14. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
13. umferð - Aron Elís Þrándarson (Víkingur)
12. umferð - Helgi Guðjónsson (Víkingur)
11. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)

Heimild: Sýn Sport

Sterkastur í 24. umferð - Með fokking Gylfa Sig fyrir framan sig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sterkastur í 24. umferð - Með fokking Gylfa Sig fyrir framan sig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sterkastur í 24. umferð - Með fokking Gylfa Sig fyrir framan sig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Sig: Ég var aldrei að fara að missa af þessum leik

Innkastið - Skortur á reisn

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram24+1246
4Breiðablik24+133
5ÍA24-333
6Keflavík24-829
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.