Fotbolti.net
07.04.18 - 15:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þýskaland: Bayern München er meistari (Staðfest)

Eina liðið sem hefur unnið sex titla í röð!

Þýskaland: Bayern München er meistari (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bayern München er Þýskalandsmeistari, sjötta tímabilið í röð! Það var löngu orðið ljóst að liðið yrði meistari en staðfest-sviginn er mættur eftir sigur liðsins á Augsburg.

Búist var við því að Alfreð Finnbogason yrði með í dag en hann var það ekki. Meiðslin eru enn að hindra hann í að spila.

Án Alfreðs komst Augsburg þó 1-0 yfir og var það Niklas Sule, varnarmaður Bayern, sem gerði sjálfsmark. Bayern náði að breyta stöðunni í 2-1 fyrir leikhlé og vann að lokum þægilegan 4-1 sigur.
Síðan Jupp Heynckes tók við liðinu fyrir áramót hefur það verið með örugggt forskot á toppi deildarinnar. Þetta er í 28. sinn sem Bayern vinnur úrvalsdeildina í Þýskalandi og í sjötta sinn í röð! Magnaður árangur hjá þessu stórveldi.

Hér að neðan má sjá önnur úrslit úr leikjunum sem voru að klárast.

Koln 1 - 1 Mainz
1-0 Jonas Hector (\'7 )
1-1 Pablo De Blasis (\'50 )
Rautt spjald: Giulio Donati, Mainz (\'90)

Freiburg 0 - 2 Wolfsburg
0-1 Daniel Didavi (\'2 )
0-2 Daniel Didavi (\'83 )
0-2 Nils Petersen (\'90 , Misnotað víti)

Borussia M. 2 - 1 Hertha
0-1 Salomon Kalou (\'40 )
1-1 Thorgan Hazard (\'75 )
2-1 Thorgan Hazard (\'79 , víti)

Augsburg 1 - 4 Bayern
1-0 Niklas Sule (\'18 , sjálfsmark)
1-1 Corentin Tolisso (\'32 )
1-2 James Rodriguez (\'38 )
1-3 Arjen Robben (\'62 )
1-4 Sandro Wagner (\'87 )

#FCBayern are the 2017/18 #Bundesliga champions! 🏆🔴⚪ #MiaSanMeister #MiaSanMia pic.twitter.com/ZK2qchGlXd

— FC Bayern English (@FCBayernEN) April 7, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.