Serbneski miðvörðurinn Dusan Brkovic hefur samið við KA fyrir átökin í Pepsi Max-deildinni í sumar.
„Mun hann því styrkja lið okkar enn frekar fyrir komandi baráttu," segir á heimasíðu KA.
„Mun hann því styrkja lið okkar enn frekar fyrir komandi baráttu," segir á heimasíðu KA.
Dusan er 32 ára gamall varnarmaður sem á yfir 150 leiki í Ungverjalandi og varð meðal annars ungverskur meistari árið 2014, með Debreceni.
Þá á Dusan um 70 leiki í efstu deild í Serbíu en á síðustu leiktíð lék hann 25 leiki og skoraði í þeim 3 mörk fyrir Diósgyöri VTK í Ungverjalandi.
„Dusan er væntanlegur norður til Akureyrar um miðjan mánuðinn og væntum við mikils af honum í KA-treyjunni í sumar og bjóðum hann hjartanlega velkominn í KA."
Sjá einnig:
Addi Grétars bíður eftir miðverði til að bæta við mjög gott lið KA
Athugasemdir