Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
mánudagur 20. maí
Lengjudeild karla
föstudagur 17. maí
Mjólkurbikar karla
mánudagur 13. maí
Lengjudeild kvenna
þriðjudagur 7. maí
Lengjudeild kvenna
mánudagur 6. maí
Besta-deild karla
Lengjudeild kvenna
laugardagur 4. maí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
miðvikudagur 1. maí
Lengjudeild karla
mánudagur 29. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
sunnudagur 19. maí
Úrvalsdeildin
Burnley 1 - 2 Nott. Forest
Luton 2 - 4 Fulham
Sheffield Utd 0 - 3 Tottenham
Arsenal 2 - 1 Everton
Brentford 2 - 4 Newcastle
Brighton 0 - 2 Man Utd
Chelsea 2 - 1 Bournemouth
Crystal Palace 5 - 0 Aston Villa
Liverpool 2 - 0 Wolves
Man City 3 - 1 West Ham
Vináttulandsleikur
Serie A
Inter 0 - 1 Lazio
Monza 0 - 1 Frosinone
Roma - Genoa - 18:45
Sassuolo 0 - 2 Cagliari
Udinese 1 - 1 Empoli
Úrvalsdeildin
Spartak 3 - 1 Rubin
Rostov 2 - 1 Baltica
Akhmat Groznyi 1 - 5 Zenit
Ural 3 - 3 Orenburg
La Liga
Athletic 2 - 0 Sevilla
Atletico Madrid 0 - 1 Osasuna
Barcelona 1 - 0 Vallecano
Betis 0 - 2 Real Sociedad
Cadiz 0 - 0 Las Palmas
Mallorca 1 - 1 Almeria
Granada CF 0 - 0 Celta
Valencia 0 - 1 Girona
Villarreal 1 - 3 Real Madrid
Damallsvenskan - Women
Trelleborg W 0 - 2 Brommapojkarna W
Linkoping W 0 - 2 Djurgarden W
KIF Orebro W 0 - 0 Pitea W
Elitettan - Women
Uppsala W 1 - 0 Sunnana W
Kalmar W 0 - 5 Eskilstuna United W
banner
fim 07.apr 2022 16:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 8. sæti: Leiknir

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Leiknir muni enda í 8. sæti í Bestu deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Leiknir endar í öðru sæti neðra umspilsins ef spáin rætist.

Mynd/Haukur Gunnarsson
Daníel Finns á eftir að sýna mörgum hversu góður hann er.
Daníel Finns á eftir að sýna mörgum hversu góður hann er.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor verður í markinu í sumar.
Viktor verður í markinu í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magic og Mikkel Dahl
Magic og Mikkel Dahl
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óttar Bjarni er kominn aftur.
Óttar Bjarni er kominn aftur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Verða Leiknismenn með þriggja manna vörn?
Verða Leiknismenn með þriggja manna vörn?
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrirliðinn Bjarki Aðalsteinsson
Fyrirliðinn Bjarki Aðalsteinsson
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sævar Atli fór til Lyngby í Danmörku í ágúst í fyrra.
Sævar Atli fór til Lyngby í Danmörku í ágúst í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. Leiknir 47 stig
9. ÍBV 35 stig
10. ÍA 33 stig
11. Keflavík 19 stig
12. Fram 17 stig

Um liðið: Leiknir endaði í 8. sæti í efstu deild í fyrra sem nýliði. Liðið var í miklum vandræðum með markaskorun en varðist aftur á móti nokkuð vel. Heimavöllurinn skilaði inn 20/22 stigum liðsins og 15/18 mörkum liðsins. Liðið hefur styrkt framlínu sína í vetur og tilfinningin er að það er komin meiri breidd í liðið.



Þjálfari - Sigurður Heiðar Höskuldsson: Siggi er einn mest spennandi þjálfari landsins. Hann tók við Leikni þegar Stefán Gíslason var ráðinn til Belgíu og hefur gert mjög góða hluti í Breiðholtinu. Siggi er 36 ára gamall og er áfram yngsti þjálfarinn í deildinni.

Styrkleikar: Miðvarðarstaðan er gífurlega vel mönnuð. Þrír flottir Leiknismenn sem gera allir tilkall á byrjunarliðssæti og gæti niðurstaðan verið að spila með þrjá miðverði í sumar. Fyrir utan þá þrjá eru svo tveir öflugir miðverði í þeim Lofti Pál og Patryk sem passa upp á að fyrstu menn á blað séu ekki í of þægilegri stöðu auk þess að bakverðirnir þekkja einnig vel að spila í hjarta varnarinnar. Það var náð í fyrrum pólskan landsliðsmann og markahæsta leikmann færeysku deildarinnar og ef þeir tveir skila inn mörkum þá verður Leiknir ekki í neinum vandræðum í sumar.

Veikleikar: Markvarðarstaðan er á pappírunum augljós veikleiki og mikið spurningamerki. Leiknismenn reyndu að fá Hannes Halldórsson í vetur en Hannes ákvað að leggja hanskana á hilluna. Viktor Freyr á að verja mark Leiknismanna og fær traustið. Hann þarf að sýna að hann sé traustsins verður.

Lykilmenn: Emil Berger og Daníel Finns. Emil Berger var frábær í liði Leiknis í fyrra, reynslumikill miðjumaður sem er með mikil gæði í því sem hann gerir. Hann kemur með ákveðna ró í liðið og getur líka sýnt hörku og barist eins og krafan er í Breiðholti. Daníel er á þeim stað núna, eftir pínu vonbrigðatímabil í fyrra, að væntingarnar eru miklar. Hann hefur raðað inn mörkum á undirbúningtímabilinu og sýnt að ef hann er á deginum þá skorar hann eða kemur að marki.

Hlaðvarpsþátturinn Ungstirnin mælir með:
Viktor Freyr Sigurðsson markmaður fæddur 2000 verður í sviðsljósinu hjá Leikni þar sem hann er að taka við búrinu af Guy Smit sem er genginn til liðs við Val. Viktor er uppalinn í Breiðabliki og skipti hann snemma í Leikni þegar hann var í 3. flokki. Viktor hefur ekki mikla reynslu í meistaraflokksbolta, hann á að baki 26 KSÍ leiki en aðeins tveir þeirra eru með Leikni í deildarkeppni. Það verður mjög áhugavert að sjá hvernig hann stendur sig í sumar því hæfileikarnir eru til staðar og Siggi Höskulds þjálfari Leiknis hefur mikla trú á kappanum.

Spurningarnar: Markvarðarstaðan? Ná nýju mennirnir að skila inn nægilega mikið af mörkum? Nær liðið að vinna leik á útivelli? Tveir eða þrír miðverðir inn á? Gæti fínast gengi á undirbúningtímabilinu blekkt Leiknismenn og þeir haldið að þeir séu betri en þeir eru?

Völlurinn: Domusnovavöllurinn. Grasvöllur í Breiðholti sem er ekki stóran hluta ársins grænn á litinn. Heimavöllurinn skilaði 91% stigafjölda liðsins í fyrra og 83% skoraðra marka. Leiknisljónin eru spennt fyrir sumrinu og munu hvetja sína menn áfram.

Fyrirliðinn segir - Bjarki Aðalsteinsson
„Mér líst vel á þessa spá, held þetta sé eðlileg spá miðað við stígandann í liðinu og skrefin sem við erum að taka bæði sem lið og félag á síðustu árum. Markmiðið er enda ofar en í fyrra, liðið er mjög flott og það eru góð merki í vetur með spilamennsku. Ég held að allir í liðinu finni fyrir ákveðinni orku og það segir sig sjálft þá að viljum gera betur en í fyrra. Við erum ekki með neitt opinbert markmið en miðað við uppganginn frá því Siggi kom inn þá er markmiðið að halda áfram í þeirri vegferð sem við erum í og ætlum að bæta okkur."

Komnir
Maciej Makuszewski frá Póllandi
Mikkel Dahl frá Færeyjum
Mikkel Jakobsen frá Færeyjum
Óttar Bjarni Guðmundsson frá ÍA
Róbert Hauksson frá Þrótti R.
Sindri Björnsson frá Grindavík
Birgir Baldvinsson frá KA (á láni)
Patryk Hryniewicki (var á láni)

Farnir
Ágúst Leó Björnsson hættur
Birkir Björnsson í Þrótt R.
Ernir Bjarnason til Keflavíkur
Guy Smit í Val
Máni Austmann Hilmarsson í FH
Manga Escobar
Octavio Paez
Róbert Quental Árnason til Ítalíu (á láni)
Sólon Breki Leifsson hættur
Sævar Atli Magnússon til Danmerkur

Fyrstu fimm leikir Leiknis:
20. apríl KA - Leiknir
24. apríl Leiknir - Stjarnan
1. maí ÍBV - Leiknir
8. maí Leiknir - Víkingur
12. maí Keflavík - Leiknir

Hin hliðin:
Arnór Ingi Kristinsson
Róbert Hauksson
Árni Elvar Árnason

Sterkasta byrjunarliðið að mati Fótbolta.net:


Aðrir leikmenn:
Atli Jónasson - 1
Bjarki Arnaldarson - 30
Arnór Ingi Kristinsson - 28
Birgir Baldvinsson - 15
Ósvald Jarl Traustason - 3
Loftur Páll Eiríksson - 24
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson - 17
Patryk Hryniewicki - 33
Árni Elvar Árnason - 8
Sindri Björnsson - 14
Mikkel Jakobsen - 27
Jón Hrafn Barkarson - 19
Róbert Hauksson - 21

Spámennirnir: Aksentije Milisic, Brynjar Ingi Erluson, Egill Sigfússon, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson og Úlfur Blandon
Athugasemdir
banner
banner