Það fór engin haka í gólf þegar ég sá GiveMeSport velja leikvanginn í Toronto í Kanada þann versta sem notaður verður á HM í sumar. Ísland spilaði þar tvo vináttulandsleiki á dögunum og ég var viðstaddur.
BMO Field er vinalegur völlur og örugglega fínn fyrir MLS-deildina þar sem Toronto FC leikur sína heimaleiki. En leikvangurinn hefur fengið ævintýralega margar undanþágur frá FIFA til að vera samþykktur sem völlur fyrir HM.
Þrátt fyrir að hafa varið háum upphæðum í endurnýjun á ýmsum hliðum er þetta pottþétt langversti HM völlur síðari ára og ég tel mig nú hafa góðan samanburð eftir að hafa heimsótt HM velli í Katar, Rússlandi og Bandaríkjunum.
BMO Field er vinalegur völlur og örugglega fínn fyrir MLS-deildina þar sem Toronto FC leikur sína heimaleiki. En leikvangurinn hefur fengið ævintýralega margar undanþágur frá FIFA til að vera samþykktur sem völlur fyrir HM.
Þrátt fyrir að hafa varið háum upphæðum í endurnýjun á ýmsum hliðum er þetta pottþétt langversti HM völlur síðari ára og ég tel mig nú hafa góðan samanburð eftir að hafa heimsótt HM velli í Katar, Rússlandi og Bandaríkjunum.
Ógnvænlegar bráðabirgðastúkur
Áður en ég held áfram að hrauna yfir leikvanginn ber að taka það fram að borgin Toronto er svo sannarlega hæf til að taka á móti fótboltaþyrstum gestum. Frábærlega skipulögð, fullt af framúrskarandi börum og veitingastöðum og gríðarlega vinalegt fólk sem vill allt fyrir mann gera. Ég var hrifinn.
Þó leikvangurinn sjálfur líti ágætlega fyrir sjónvarpsvélarnar þegar inn er komið stenst byggingin alls ekki kröfur til að vera hluti af stærsta viðburði jarðarinnar.
Verið var að klára að setja upp ógnvænlegar bráðabirgðastúkur sem hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum en með þeim tekur völlurinn 45 þúsund áhorfendur, sem er lágmarksfjöldi fyrir HM. Mörgum þykir það hræðileg tilhugsun að vera í efstu röð í þeim stúkum eftir nokkra svellkalda (mynd til útskýringar).
Aðbúnaður inni á leikvangnum er síðan frekar fábrotinn. Fjölmiðlamenn nota sömu lyftu til að komast í fjölmiðlaaðstöðuna og notuð er til að bera veitingar í VIP-salinn og fleira. Útsýnið úr fjölmiðlastúkunni er svo verulega skert vegna gluggakarma og úr mörgum sætum sést ekki hluti af vellinum.
Eini íslenski fréttamaðurinn fékk ekki passa
Það sem hringir einnig viðvörunarbjöllum í mínum huga fyrir mótið er hversu erfitt var að vera í samskiptum við fjölmiðladeild kanadíska sambandsins og starfsmenn á vellinum. Ég var eini fjölmiðlamaðurinn sem kom frá Íslandi til að fjalla um leikinn en samt sem áður fékk ég upphaflega synjun á fjölmiðlapassa. Þrátt fyrir að fylla út ítarlegri upplýsingar en ég hef nokkurn tíma áður gert um mig, minn miðil og mín störf.
Eftir að hafa fengið aðstoð frá KSÍ og Samtökum íþróttafréttamanna viðurkenndi kanadíska sambandið að það hefðu verið gerð mistök og ég fengi aðgang. Það hafði þó ekki skilað sér til starfsmanna vallarins daginn fyrir leik Kanada og Íslands og þrátt fyrir langar samræður fyrir utan völlinn átti mér ekki að vera hleypt inn fyrr en Ómar Smárason, starfsmaður KSÍ, mætti á svæðið.
Eftir að hafa í fjöldamörg ár ferðast víða um heiminn og fylgt landsliðinu og íslenskum félagsliðum hef ég aldrei kynnst strembnari móttökum. Og það ber að ítreka það að þetta voru vináttulandsleikir!
Fyrsti leikurinn á HM sem verður spilaður í Toronto er viðureign heimamanna og Bosníumanna 12. júní. Ég er spenntur að heyra hvað Þjóðverjar segja um leikvanginn en Þýskaland og Fílabeinsströndin leika þar 20. júní. Meðal annarra leikja á vellinum verður leikur í 32-liða úrslitum mótsins.
Bandaríkin, Mexíkó og Kanada halda HM í sumar og það má svo kannski fylgja að lokum að GiveMeSport valdi Azteca leikvanginn í Mexíkó þann besta á HM og í öðru sæti er Mercedes-Benz leikvangurinn í Atlanta.

