Fotbolti.net
07.04.26 - 20:08
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Bætti þrjátíu ára gamalt met Raúl

Thiago Pitarch í leik með Real Madrid

Thiago Pitarch í leik með Real Madrid

Canon

Mynd: EPA

Spænski miðjumaðurinn Thiago Pitarch skrifaði nafn sitt í sögubækur Real Madrid með því að byrja gegn Bayern München í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Þessi 18 ára gamli Spánverji var óvænt valinn í byrjunarliðið hjá Madrídingum fram yfir Jude Bellingham í kvöld.

Pitarch hefur fengið tækifærin á þessu tímabili og hefur Alvaro Arbeloa, þjálfari liðsins, verið að taka hann fram yfir Eduardo Camavinga síðasta mánuðinn.

Í kvöld setti hann met þegar hann varð yngsti leikmaðurinn til að byrja leik fyrir Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en hann bætti met Raúl sem stóð í 30 ár.

Í síðasta mánuði varð hann yngstur til að byrja leik í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar og því í annað sinn sem hann tekur met af Raúl á stuttum tíma.

Real Madrid er að tapa fyrir Bayern, 1-0, á Bernabeu en Luis Díaz gerði markið undir lok fyrri hálfleiks.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.