07.04.26 - 20:09
Brynjar Ingi Erluson

Bayern með tveggja marka forystu á Bernabeu - Átti Real að fá víti?

Luis Díaz skoraði 23. mark sitt á tímabilinu

Mynd: EPA

Harry Kane skoraði eftir stoðsendingu Michael Olise

Þýskalandsmeistarar Bayern München eru 2-0 yfir gegn Real Madrid í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Kólumbíumaðurinn Luis Díaz skoraði fyrra markið á 41. mínútu eftir frábæra stungusendingu Serge Gnabry.
Þetta var 23. mark Díaz á tímabilinu en Bæjarar hafa átt betri færi til þessa. Dayot Upamecano var nálægt því að skora snemma leiks en besta færi Madrídinga átti Kylian Mbappe sem Manuel Neuer varði út í teiginn.
Snemma í síðari hálfleiknum bætti Harry Kane við öðru. Bayern vann boltann á miðsvæðinu og honum síðan komið á hægri vænginn á Michael Olise sem lagði hann til hliðar á Kane sem skoraði með frábæru skoti neðst í hægra hornið. Þetta var 28. stoðsendingar Olise á tímabilinu og 49. mark Kane í öllum keppnum.
Sjáðu markið hjá Díaz
Sjáðu markið hjá Kane
Madrídingar vildu fá vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks er Vini Jr féll í teignum eftir að Upamecano setti löppina út en fékk ekkert fyrir sinn snúð.
Sjáðu umdeilda atvikið hér