Fotbolti.net
07.04.26 - 17:55
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: 250. leikur Gabriel - Kane byrjar en Bellingham á bekknum

Declan Rice og Gabriel byrja báðir hjá Arsenal

Declan Rice og Gabriel byrja báðir hjá Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast klukkan 19:00 í kvöld en þar verður meðal annars stórleikur Real Madrid og Bayern München á dagskrá.
Arsenal heimsækir portúgalska liðið Sporting.

Mikel Arteta er með sterkt byrjunarlið þrátt fyrir að ellefu leikmenn hafi dregið sig úr landsliðsverkefninu í síðustu viku.

Declan Rice og Martin Zubimendi eru báðir í liðinu og þá mun brasilíski varnarmaðurinn Gabriel leika sinn 250. leik fyrir félagið. David Raya er í markinu.

Kólumbíski sóknarmaðurinn Luis Suarez er fremstur hjá Sporting og eru þeir Pedro Goncalves, Trincao, Ousmane Diomande og Goncalo Inacio allir í liðinu.

Harry Kane byrjar hjá Bayern gegn Real Madrid á Santiago Bernabeu en hann var ekki með þýska liðinu í deilldinni um helgina. Frábærar fréttir fyrir Bayern sem er einnig með þá Luis Díaz og Michael Olise í sókninni.

Kylian Mbappe, Vini Jr og Federico Valverde eru alir í liði Madrídinga. Thibaut Courtois er meiddur og er Andriy Lunin í markinu í stað hans. Jude Bellingham er á bekknum.

Sporting: Rui Silva; Fresneda, Diomande, Gonçalo Inácio, Maxi Araújo; João Simões, Morita; Catamo, Trincão, Pedro Gonçalves; Luis Suárez

Arsenal: David Raya; White, Saliba, Gabriel, Calafiori; Zubimendi, Rice, Odegaard; Madueke, Gyökeres, Trossard.



Real Madrid: Lunin; Trent, Rüdiger, Huijsen, Álvaro Carreras; Tchouaméni, Thiago Pitarch, Fede Valverde; Arda Güler; Mbappé, Vinicius

Bayern München: Neuer; Stanisic, Upamecano, Tah, Laimer; Kimmich, Pavlovic; Olise, Gnabry, Luis Díaz; Kane.
Harry Kane og Luis Díaz eru í liði Bæjara

Harry Kane og Luis Díaz eru í liði Bæjara

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.