Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 18:19
Brynjar Ingi Erluson
Isak snýr aftur á völlinn á morgun
Alexander Isak
Alexander Isak
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Alexander Isak verður loks til taks með Liverpool er liðið heimsækir Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun.

Þjálfarateymið vildi ekki taka neina sénsa með Isak sem byrjaði að æfa fyrir helgi, fjórum mánuðum eftir að hafa fótbrotnað.

Talað var um að hann gæti verið í hópnum gegn Manchester City í enska bikarnum en Arne Slot taldi það of snemmt.

Isak ferðaðist með Liverpool í útileikinn gegn PSG og mun hann fá mínútur á morgun.

„Hann kláraði næstum því heila viku af æfingum þannig hann getur spilað rullu annars hefði ég ekki tekið hann með. Ég var ekki með hann í hópnum hjá Etihad af því við töldum hann ekki kláran í að skila inn frammistöðu. Nú teljum við hann kláran, en hann mun ekki byrja,“ sagði Slot.

Liverpool verður hins vegar án Alisson Becker sem er að jafna sig af meiðslum en hann verður ekki klár fyrr en í lok apríl.

„Við undirbúum okkur fyrir leikinn og ef hann fer eins og við erum að vonast eftir þá þurfum við ekki á markverðinum okkar að halda. En ég held að PSG hafi skorað í öllum heimaleikjum sínum nema einum á tímabilinu.“

„Þegar þú spilar gegn jafn sókndjörfu liði og PSG þá þarftu góðan markvörð. Mér fannst við ekki þurfa á markverðinum að halda fyrstu 20 mínúturnar gegn Man City, en ég var að binda miklar vonir við að hann myndi verja nokkur skot eftir það,“
sagði Slot enn fremur.
Slapp
banner
banner
banner