Fotbolti.net
07.04.26 - 23:21
Brynjar Ingi Erluson

Lengjubikar kvenna: KR kom til baka gegn Keflavík

KR-ingar eru á toppnum

KR-ingar eru á toppnum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
KR 3 - 3 Keflavík
0-1 Ariela Lewis ('28 )
0-2 Eva Dís Sighvatsdóttir ('31 )
1-2 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('35 )
1-3 Emma Kelsey Starr ('38 )
2-3 Karítas Ingvadóttir ('55 )
3-3 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('90 )
KR-ingar eru með þriggja stiga forystu á toppi B-deildar Lengjubikars kvenna eftir flotta endurkomu í 3-3 jafntefli gegn Keflavík á KR-vellinum í kvöld.

Heimakonur áttu möguleika á að gulltryggja toppsætið gegn Keflavík en það gekk brösuglega.

Ariela Lewis og Eva Dís SIghvatsdóttir komu Keflvíkingum í tveggja marka forystu. Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir minnkaði muninn á 35. mínútu áður en Emma Starr tvöfaldaði aftur forystu gestanna.

Í síðari hálfleiknum komu KR-ingar til baka. Karítas Ingvadóttir skoraði á 55. mínútu og jafnaði Valgerður Gríma metin undir lok leiks með öðru marki sínu.

Gæti reynst mikilvægt stig fyrir KR sem var að spila síðasta leik sinn í riðlinum og er nú með 14 stig á toppnum. HK á möguleika á að taka toppsætið en til þess þarf liðið að vinna Gróttu á laugardag.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1HK6+1414
2KR6+814
3Keflavík608
4Grótta6-38
5Haukar607
6ÍA6-55
7Selfoss6-141
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.