Fotbolti.net
07.04.26 - 20:27
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Lykilmaður Real Madrid í banni í seinni leiknum

Aurelien Tchouameni í leik með Real Madrid

Aurelien Tchouameni í leik með Real Madrid

Canon

Mynd: EPA

Franski miðjumaðurinn Aurelien Tchouameni, sem er á mála hjá Real Madrid, verður í banni í seinni leiknum gegn Bayern München í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir að hafa fengið gult í kvöld.
Tchouameni sem er lykilmaður í liði Madrídinga fékk gult spjald á 37. mínútu leiksins er hann hljóp inn í Michael Olise.

Ótrúlegur klaufaskapur hjá Frakkanum sem verður í banni í seinni leiknum vegna uppsafnaðra gulra spjalda.

Miðjumaðurinn er að spila 43 leik sinn á tímabilinu og verið einn af fyrstu mönnum á blað hjá Arbeloa og var það líka er Xabi Alonso var við stjórnvölinn.

Bayern er 2-0 yfir á Santiago Bernabeu. Luis Díaz skoraði eftir góða sókn undir lok fyrri hálfleiks og gerði Englendingurinn Harry Kane síðan stórbrotið mark í upphafi síðari hálfleiks.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.