Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Markverðirnir valdir bestir
Manuel Neuer var frábær í kvöld
Manuel Neuer var frábær í kvöld
Mynd: EPA
Markverðirnir David Raya og Manuel Neuer voru bestu menn kvöldsins í Meistaradeild Evrópu að mati evrópska fótboltasambandsins, UEFA.

Raya átti nokkrar mikilvægar vörslur í marki Arsenal í 1-0 sigrinum á Sporting í Portúgal.

FotMob gaf honum 8,9 í einkunn og var hann alls með fimm vörslur. Samkvæmt xG tölfræðinni kom hann í veg fyrir 1,63 mark og spilaði því mikilvæga rullu í Arsenal-liðinu.

Á Spáni var kollegi Raya, Manuel Neuer, einnig í essinu sínu en þessi fertugi markvörður sem er af mörgum talinn besti markvörður allra tíma var með níu vörslur og langmikilvægasti leikmaður Bæjara í kvöld.

Hann hefur ekki átt svona margar vörslur eða síðan hann varði tíu skot Salzburg árið 2020.




Slapp
banner