07.04.26 - 10:21
Elvar Geir Magnússon
Ramsey búinn að fleygja skónum upp í hillu

Aaron Ramsey er hættur að spila fótbolta.

Mynd: EPA

Velski landsliðsfyrirliðinn Aaron Ramsey hefur lagt skóna á hilluna en hann er 35 ára og hefur verið félagslaus síðan hann yfirgaf mexíkóska liðið Pumas UNAM á síðasta ári.
Ramsey, sem er fyrrum miðjumaður Arsenal, hyggst nú snúa sér að þjálfun.
Ramsey er einn besti landsliðsmaður í sögu Wales en hann skoraði 21 mark í 86 leikjum og lék á þremur stórmótum. Hann var í úrvalsliði EM 2016 þar sem Wales komst í undanúrslit,

TENGT EFNI
Ekkert pláss fyrir gamla fyrirliðann í velska landsliðshópnum
Leikmannaferill hans hófst hjá Cardiff City áður en hann gekk í raðir Arsenal 2008 þar sem hann vann FA-bikarinn í þrígang og skoraði tvisvar sigurmark í úrslitaleik. Hann var ellefu ár hjá Arsenal.
Hann lék svo fyrir Juventus, Nice og kom aftur heim til Cardiff þar sem hann var svo bráðabirgðastjóri um stuttan tíma í lok síðasta tímabils.
Hann gekk í raðir Pumas í þeirri von að geta spilað með Wales á HM en hann hefur nú ákveðið að setja skóna á hilluna.

Í leik með Arsenal.

Mynd: EPA