Arne Slot, stjóri Liverpool, er nokkuð brattur fyrir leik liðsins gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun og það sé eitt af einkennum félagsins að rísa upp þegar á móti blæs.
Liverpool er ríkjandi Englandsmeistari en hefur ekki verið að spila eins og sönnum meisturum sæmir á þessari leiktíð.
4-0 tap liðsins gegn Manchester City um helgina var eitt versta tap tímabilsins, en er nokkurn veginn saga liðsins á þessari leiktíð.
Á morgun mun koma í ljós úr hverju liðið er gert en Slot sagði svarið liggja í sögu félagsins.
„Það er alveg hárrétt að það hefur verið ósamræmi í bæði frammistöðu og úrslitum á tímabilinu, en ég tel svarið liggja í sögu Liverpool. Þeir standa upp þegar á móti blæs. Við höfum átt mörg erfið augnablik og staðið nokkrum sinnum upp en síðan dottið aftur
„Við þurfum að sýna þetta hugarfar aftur, halda áfram og rífa okkur aftur á lappir eftir þessi vonbrigði. Félagið hefur líka sýnt að það getur gert sérstaka hluti á erfiðum stundum eins og við sýndum á síðasta tímabili og nú síðast gegn Galatasaray þar sem við spiluðum okkar besta leik á tímabilinu.“
„Svarið er í sögu Liverpool en það er hægara sagt en gert. Við höfum allt of oft séð það sem við sáum í þessari 20 mínútur gegn Manchester City, en vanalega varir það aðeins í fimm til tíu mínútur.“
„Þessi hópur hefur sýnt að það getur komið til baka eftir bakslög og fyrir utan þessi gæði sem leikmennirnir hafa þá hafa þeir sýnt svo mörgum sinnum fyrir utan þessa tvo leiki á Etihad að þeir geta keppt við bestu lið Evrópu,“ sagði Slot.


