07.05.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Álftanes fær tvo erlenda (Staðfest)


Mynd: Vestri


Mynd: Vestri
Álftanes stefnir á að koma sér upp úr 4. deildinni í sumar og hefur fengið tvo bandaríska leikmenn til liðs við sig fyrir komandi átök.
Zach Klindworth og Brandon Wellington heita Bandaríkjamennirnir og voru báðir í úrvalsliði SocceraViza, sem er fyrirtæki stofnað af Giuseppe Joe Funicello, fyrrum leikmanni Þórs og þjálfara Vestra.
Zach Klindworth og Brandon Wellington heita Bandaríkjamennirnir og voru báðir í úrvalsliði SocceraViza, sem er fyrirtæki stofnað af Giuseppe Joe Funicello, fyrrum leikmanni Þórs og þjálfara Vestra.
SoccerViza er fyrirtæki sem kemur knattspyrnumönnum á framfæri. Úrvalsliðið lék meðal annars æfingaleik við Íslandsmeistara Vals í febrúar og tapaði 3-0.
Zach er sóknarsinnaður leikmaður og góður með boltann. Brandon er sterkur miðjumaður frá Kanada.
Zach er sóknarsinnaður leikmaður og góður með boltann. Brandon er sterkur miðjumaður frá Kanada.
