Fotbolti.net
07.05.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Friðrika í Gróttu (Staðfest)

Friðrika í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Grótta

Kvennaboltinn
Friðrika Arnardóttir mun verja mark Gróttu út tímabilið en hún kemur til liðsins á láni frá Þrótti.

Friðrika er fædd árið 2000 og lék fjóra leiki með Þrótti síðasta sumar. Friðrika varði mark Þróttar stærsta hluta undirbúningstímabilsins en hin bandaríska Kori Butterfield gekk til liðs við Þrótt í apríl og verður aðalmarkvörðurinn í sumar.
Íris Dögg Gunnarsdóttir varði mark Gróttu í fyrra. Hún getur ekki leikið í sumar vegna barneigna.

Friðrika spilaði sinn fyrsta leik með Gróttu í Mjólkurbikarnum í gær og varði meðal annars vítaspyrnu í síðari hálfleik. Grótta hafði betur gegn Tindastóli, 3-2.

Hér til hægri er hægt að sjá mynd af Friðriku ásamt Guðjóni Kristinssyni, þjálfara Gróttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.