Fotbolti.net
07.05.19 - 17:00
Arnar Daði Arnarsson

Ragnar Leós til Ringköbing (Staðfest)

Ragnar Leósson.

Ragnar Leósson.

Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Skagamaðurinn, Ragnar Leósson hefur skrifað undir samning við danska C-deildarliðið Ringkøbing. Frá þessu er greint á Twitter-síðu félagsins.

Ragnar skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Ragnar lék 14 leiki með ÍA í Inkasso-deildinni í fyrra þegar liðið vann deildina auk þess sem hann lék fjóra bikarleiki.

Fyrr í vetur gerði hann félagaskipti yfir í Kára og lék með liðinu í tveimur leikjum í Mjólkurbikarnum á þessu tímabili.

Hér á landi hefur Ragnar leikið með ÍA, Kára, ÍBV, Leiknir R., Fjölni og HK. Hann á 207 meistaraflokksleiki að baki og skorað í þeim 28 mörk.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.