Fotbolti.net
07.05.21 - 08:00
Victor Pálsson

„Grealish elskar Aston Villa"

„Grealish elskar Aston Villa"
Canon

Mynd: Getty Images

Jack Grealish elskar Aston Villa segir umboðsmaður hans Jonathan Barnett en Grealish er sterklega orðaður við önnur félög.
Grealish er besti leikmaður Villa og fyrirliði liðsins en mörg stórlið hafa sýnt honum áhuga.

Barnett segir þó að Grealish sé ánægður í herbúðum félagsins og bíður með að taka ákvörðun þar til í sumar.

„Hann elskar Aston Villa en við þurfum bara að sjá til hvernig þetta gengur fyrir sig," sagði Barnett.

„Eins og er þá er hann leikmaður Villa og hugsar ekki um annað. Við verðum að gera það sem er best fyrir Jack og alla aðra."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.