lau 07. maí 2022 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Bilbao nýtti ekki tækifærið - Lífsnauðsynlegt hjá Granada
Jorge Molina í búningi Getafe, skoraði tvö fyrir Granda í dag.
Jorge Molina í búningi Getafe, skoraði tvö fyrir Granda í dag.
Mynd: Getty Images

Tveir leikir fóru fram í spænsku deildinni í dag.


Athletic Bilbao fékk tækifæri á því að minnka bilið á Real Sociedad sem situr í 6. sæti sem gefur sæti í Evrópudeildinni.

Sociedad tapaði gegn Levante 2-1 í gær og Athletic gat þá með sigri í dag minnkað bilið í tvö stig. Það tókst ekki en leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

Mallorca og Granada áttust við í fallbaráttuslag en það var boðið uppá markaveislu. Eftir hálftíma leik var staðan 3-2 fyrir Granada en liðið skoraði síðan þrjú mörk síðustu 20 mínúturnar og unnu að lokum 5-2.

Granada er því tveimur stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Mallorca er hinsvegar í sætinu fyrir ofan fallsæti en með jafnmörg stig og Cadiz sem er sæti neðar en Cadiz á einnig leik til góða.

Athletic 0 - 0 Valencia
Rautt spjald: Hugo Guillamon, Valencia ('90)

Mallorca 2 - 6 Granada CF
0-1 Luis Suarez ('6 )
1-1 Salva Sevilla ('28 )
1-2 Sergio Escudero ('46 )
1-3 Antonio Puertas ('55 )
2-3 Antonio Raillo ('58 )
2-4 Jorge Molina ('69 )
2-5 Myrto Uzuni ('78 )
2-6 Jorge Molina ('90 )

Levante 2-1 Real Sociedad (Í gær)
1-0 J. Mramon ('53 )
1-1 D. Silva ('66 )
2-1 G. Melero ('90 )


Athugasemdir
banner
banner
banner