Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
   sun 07. maí 2023 22:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Origo vellinum
Guðmundur Andri: Búningastjórinn okkar bara með smá skitu
Alltaf gaman að vinna KR
Guðmundur Andri Tryggvason.
Guðmundur Andri Tryggvason.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
„Þetta er geggjað, það er alltaf gaman að vinna KR," sagði uppaldi KR-ingurinn, Guðmundur Andri Tryggvason, eftir 5-0 sigur Vals á KR í Bestu deildinni í kvöld.

Guðmundur Andri átti góðan leik og skoraði eitt virkilega flott mark í fyrri hálfleiknum.

Lestu um leikinn: Valur 5 -  0 KR

„Við mættum þeim með baráttu og svo skinu gæðin í gegn í mörkunum," sagði hann um lykilinn að þessum góða sigri.

„Ég var svolítið heppinn að fá hann aftur í markinu og var fljótur að hugsa. Það var smá heppni í þessu en gaman."

Er extra sætt fyrir hann sem uppalinn KR-ing að vinna þennan sigur? „Nei, ekkert þannig. Það er alltaf gaman að vinna og hvað þá svona sannfærandi. Það er bara alltaf gaman að vinna."

Hann er virkilega sáttur með byrjunina hjá liðinu í mótinu. Það vakti athygli fyrir leik að hann var ekki í byrjunarliðinu á skýrslunni en því var svo breytt fyrir leik. Lúkas Logi Heimisson var í upprunalegu byrjunarliði.

„Byrjunarliðið var tilkynnt í gær og búningastjórinn okkar var bara með smá skitu," sagði Guðmundur Andri léttur að lokum.
Slapp
Athugasemdir
banner