Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 11:58
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
Kristall tæpur fyrir bikarúrslitaleikinn
Kristall Máni Ingason.
Kristall Máni Ingason.
Mynd: Brann
Íslendingaliðið Brann í norska boltanum leikur bikarúrslitaleik gegn Bodö/Glimt í Osló á laugardaginn en leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma.

Óvíst er hvort Kristall Máni Ingason geti tekið þátt í leiknum en þetta kemur fram í viðtali við Frey Alexanderson, þjálfara liðsins, á Vísi.

„Því miður er hann tæpur fyrir úrslitaleikinn á laugardaginn. Hann fékk högg á fótinn í leiknum á móti Frederikstad og það er mjög tvísýnt hvort hann geti spilað á laugardaginn. Því miður, af því hann er í miklu flæði. En sjáum til. Það er ekki útilokað að hann geti tekið þátt," segir Freyr við Vísi.

Kristall hefur verið funheitur með Brann að undanförnu og skorað fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum. Hann er einn af fjórum íslenskum leikmönnum hjá Brann. Jón Dagur Þorsteinsson hefur spilað alla deildrleiki liðsins á tímabilinu en Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson eru á meiðslalistanum.


Slapp
banner
banner
banner