07.06.17 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Allegri framlengir við Juventus (Staðfest)

Allegri verður áfram stjóri Juventus.

Mynd: Getty Images

Allegri verður áfram stjóri Juventus.

Mynd: Getty Images
Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, hefur skrifað undir nýjan samning við Ítalíumeistarana sem gildir til 2020.
Hinn 49 ára gamli Allegri hefur gert frábæra hluti með Juve. Hann hefur unnið Seríu A þrisvar í röð, hefur komið liðinu tvisvar í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og þá hefur ítalski bikarinn unnist þrisvar.

„Núna er kominn tími á að taka næsta skref fram á við í sameiningu,\" segir í yfirlýsingu frá Juventus.
Í maí á síðasta ári gerði Allegri, sem er fyrrum þjálfari AC Milan, samning við Juventus til ársins 2018.
Hann hefur nú framlengt aftur og það eru stuðningsmenn félagsins gríðarlega sáttir með.
Tímabilið sem var að líða var gott fyrir Juventus, þeir urðu Ítalíumeistarar og komust í úrslit Meistaradeildarinnar, en töpuðu þar gegn Real Madrid, lokatölur 4-1.