07.06.17 - 19:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Philipp til Dortmund á 20 milljónir (Staðfest)

Genginn í raðir Dortmund.

Mynd: Getty Images

Genginn í raðir Dortmund.

Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur gengið frá kaupum á þýska U-21 árs landsliðsmanninum Maximilian Philipp frá Freiburg.
Hann kemur til Dortmund fyrir 20 milljónir evra.

Dortmund tilkynnti um kaupin í dag, en Philipp skrifar undir fimm ára samning við þýska stórliðið.
Hann spilaði 25 leiki með Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og skorað níu mörk, þar á meðal eitt í 3-1 sigri á Dortmund.
„BVB er eitt stærsta félag heims. Það er mér heiður að geta spilað hérna,\" sagði Philipp.
Það er nóg að gera hjá skrifstofunni hjá Dortmund. Peter Bosz var í gær ráðinn þjálfari liðsins og þá hefur félagið einnig samið við Omer Toprak, Mahmoud Dahoud og Dan-Axel Zagadou í sumar.