07.06.18 - 17:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danskur landsliðsmaður í Dortmund (Staðfest)

Delaney í búningi Dortmund.

Mynd: Getty Images

Delaney í búningi Dortmund.

Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur gengið frá kaupum á danska landsliðsmanninum Thomas Delaney. Sá er miðjumaður og kemur til Dortmund frá Werder Bremen.
Delaney skrifar undir fjögurra ára samning við Dortmund en hvorugt félag hefur gefið upp kaupverð. Þýskir fjölmiðlar vilja meina að það sé í kringum 20 milljónir evra.

„Þegar Dortmund kallaði þá hugsaði ég mig ekki tvisvar um,\" sagði Delaney eftir að hafa skrifað undir.
Delaney spilaði 32 leiki fyrir Werder Bremen á síðasta tímabili, skoraði þrjú og lagði upp fimm. Hann er á leiðinni á HM með Danmörku, en Danir eru í riðli með Frakklandi, Ástralíu og Perú. Nicklas Bendtner er ekki með Dönum á mótinu.
Delaney, sem er uppalinn í FC Kaupmannahöfn, er þriðji leikmaðurinn sem Dortmund fær eftir að tímabilinu lauk en félagið fékk markvörðinn Marwin Hitz frá Augsburg og miðjumanninn Marius Wolf frá bikarmeisturum Eintracht Frankfurt.
Dortmund skipti líka um þjálfara, Lucien Favre tók við liðinu.

🎥 Heute in Dortmund...#Delaney2022 pic.twitter.com/9Q6AoWNSO9
— Borussia Dortmund (@BVB) June 7, 2018