Fotbolti.net
07.06.18 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Eddi Gomes gefur FH pening til að bæta klefana

Eddi Gomes.

Eddi Gomes.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn öflugi Eddi Gomes á tvo leiki eftir með FH áður en hann snýr aftur til Henan Jianye í Kína eftir lándsvöl sína á Íslandi.

Eddi ákvað á dögunum að gefa FH pening til að bæta búningaaðstöðuna fyrir meistaraflokk karla og kvenna hjá félaginu.

Hinn 29 ára gamli Eddi kemur úr ofurdeildinni í Kína þar sem nóg er til af pening og aðstaðan fyrir leikmenn er upp á það besta.
„Ég gaf félaginu pening til að gera aðstöðuna flottari bæði fyrir strákana og stelpurnar. Ég veit hvaðan ég kem og hvar ég stend núna. Ég veit hversu erfitt það er þegar félög eiga ekki ýmsa hluti svo fyrir mig er mikilvægt að gefa til baka,\" sagði Eddi í viðtali við Fótbolta.net í vikunni.

„Í Kína hafa félögin aðeins meiri pening og aðstæðurnar eru eftir því. Ég þarf ekki að hafa lúxus alls staðar í kringum mig. Stundum þarftu að vera auðmjúkur og taka þessu eins og það er.\"

„Mér finnst búningsklefinn allt í lagi hjá FH. Þetta snýst ekki um hvernig hann lítur út heldur hvernig strákarnir taka þér og hvernig þú skemmtir þér með strákunum í klefanum.\"


Sjá einnig:
Sagan af Eddi Gomes - „Er ekki í fótbolta til að eignast vini\"
Eddi Gomes spilar tvo leiki í viðbót með FH
Eddi Gomes í viðtali - Úr kínversku ofurdeildinni í Pepsi-deildina
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.