Fotbolti.net
07.06.18 - 10:00
Ingólfur Páll Ingólfsson

Eniola Aluko gengur til liðs við Juventus (Staðfest)

Eniola Aluko gengur til liðs við Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Eniola Aluko hefur gengið til liðs við kvennalið Juventus frá Chelsea.
Aluko hefur verið hjá Chelsea undanfarin sex ár og skoraði 7 mörk í öllum keppnum er Chelsea sigraði bæði deildina sem og FA bikarinn á þessu tímabili. Liðið komst einnig í undanúrslit Meistaradeildarinnar.

Juventus byrjaði aðeins með kvennalið í fyrra en vann Seria A á sínu fyrsta tímabili og munu keppa í meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Aluko var hluti af landsliði Englands sem endaði í 2. sæti á Evrópumótinu árið 2009 og 3. sæti á Heimsmeistaramótinu í Kanada fyrir þremur árum.

Hún hefur hinsvegar ekki verið valinn í hóp síðan í maí 2016 og lenti í málaferlum við fyrrverandi landsliðsþjálfara Englands eftir að hafa sakað hann um kynþáttafordóma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.