07.06.19 - 12:30
Arnar Daði Arnarsson
Ashley Williams yfirgefur Everton (Staðfest)

Williams í leik með Everton.

Mynd: Getty Images

Williams í leik með Everton.

Mynd: Getty Images
Hinn 34 ára gamli Ashley Williams verður ekki áfram í herbúðum Everton. Þetta tilkynnti félagið á Twitter aðgangi sínum fyrr í dag.
Fyrr í vikunni var greint frá því að fyrirliði liðsins, Phil Jagielka sé búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið eftir 12 ár á Goodison Park.
Fyrr í vikunni var greint frá því að fyrirliði liðsins, Phil Jagielka sé búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið eftir 12 ár á Goodison Park.
Ashley Williams, sem er 34 ára gamall hefur leikið með Everton undanfarin þrjú ár eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá Swansea. Hann lék 73 leiki með Everton.
Jafnaldri Williams, Leighton Baines hefur hins vegar fengið nýtt samningstilboð frá Everton og bendir flest til þess að hann verði áfram hjá félaginu á næsta tímabili.
Jafnaldri Williams, Leighton Baines hefur hins vegar fengið nýtt samningstilboð frá Everton og bendir flest til þess að hann verði áfram hjá félaginu á næsta tímabili.
📋 | #EFC confirm Ashley Williams will leave the Club when his contract expires at the end of the month, while Leighton Baines has been offered a new one-year contract.
— Everton (@Everton) June 7, 2019
