Fotbolti.net
07.06.19 - 14:48
Arnar Daði Arnarsson

Boa Morte nýr aðstoðarþjálfari Everton (Staðfest)

Luis Boa Morte og Hermann Hreiðarsson.

Luis Boa Morte og Hermann Hreiðarsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er nóg af tíðindum úr herbúðum Everton þessa vikuna. Félagið tilkynnti í dag nýjan aðstoðarþjálfara en áður hafði verið greint frá því að fyrirliði Phil Jagielka og Ashley Williams væru búnir að leika sína síðustu leiki fyrir félagið.
Portú­gal­inn Luis Boa Morte sem lék lengi í ensku úr­vals­deild­inni lengst með Fulham hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Everton.

Hann var síðast aðstoðarþjálfari Maccabi Haifa í Ísrael en hann tekur við stöðunni af Joao Pedro Sousa sem tók við liði Famalicao í Portúgal eftir tímabilið.

Boa Morte, sem nú er 41 árs gam­all, spilaði á sín­um tíma 28 landsleiki fyr­ir Portúgal. Á Englandi lék hann með Arsenal, Southampton, Fulham, West Ham og síðast með Chesterfield tímabilið 2012-2013.

„Ég er mjög spennt­ur að starfa fyrir Evert­on. Þetta er fé­lag með mikla sögu og hefð," sagði Boa Morte, sem áður hef­ur unnið með knatt­spyrn­u­stjór­an­um Marco Silva áður hjá Sporting í Portúgal. Þá var Boa Morte þjálfari unglingaliðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.