Fotbolti.net
07.06.19 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Rodrygo Goes gengur í raðir Real Madrid 8. júlí (Staðfest)

Rodrygo Goes gengur í raðir Real Madrid 8. júlí (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brassinn ungi Rodrygo Goes gengur til liðs við Real Madrid 8. júlí eftir að hafa verið keyptur frá Santos í fyrra. Hann er 18 ára framherji sem hefur skorað 17 mörk í 80 leikjum fyrir Santos.
Real Madrid og Barcelona voru í harðri baráttu um táninginn í fyrrasumar og eru bæði talin hafa boðið 44 milljónir evra fyrir hann til að virkja riftunarákvæði. Hann hefur haldið með Real allt sitt líf og hlakkar til að spila með félaga sínum Vinicius Junior.

„Um leið og ég heyrði að Real Madrid vildi mig var ekkert annað sem kom til greina. Ég hugsaði mig ekki tvisar um, þetta er draumur að rætast fyrir mig," sagði Rodrygo í viðtali í maí.

„Ég spjallaði við Vinicius og Marcelo og þeir sögðu að þetta félag væri allt sem ég ímyndaði mér. Við Vinicius erum svipaðir leikmenn. Við erum báðir snöggir, viljum taka menn á og skora mörk.

„Við erum líka mjög góðir vinir utan vallar. Hann er mjög glaðlynd manneskja og lætur alla í kringum sig brosa."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.