Fotbolti.net
07.06.19 - 18:00
Arnar Daði Arnarsson

Vorm yfirgefur Tottenham (Staðfest)

Michel Vorm.

Michel Vorm.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur tilkynnt það að Michel Vorm markvörður félagsins hefur yfirgefið félagið en samningur hans við félagið rennur út í sumar.

Þetta tilkynnti Tottenham á Twitter síðu sinni og í kjölfarið sendi Vorm frá sér yfirlýsingu á sínum Twitter aðgangi. Hægt er að sjá Twitter-færslurnar hér að neðan.

Vorm gekk í raðir Tottenham frá Swansea árið 2014 og hefur leikið 14 leiki með félaginu en hann hefur verið varamarkvörður liðsins frá því að hann kom.

Vorm á einnig 14 landsleiki með hollenska landsliðinu.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.